
Þjónustu og greiðslu skilmálar
Kaupskilmáli
Stefna okkar hjá Framkoma.is er að koma til móts við alla okkar viðskiptavini. Það þýðir að sé viðskiptavinur ekki fullkomlega ánægður með það námseið sem hefur verið verslað, munum við með öllu okkar besta móti reyna bæta úr því. Við berum fulla ábyrgð á okkar námskeiðum og komi það til að þú hafir klárað námskeið og ekki sátt/ur með árangur þinn á námskeiðinu munum við bæta úr því með því að færa þig á námskeið sem hentar þér betur.
Breyting á skráningu
Komi það til að þú að þú getir ekki sótt námskeiðið okkar vegna sannarlega og óviðráðanlegra aðstæðna þá bjóðum við upp á að þú færir þig á sama námskeið á nýrri dagsetningu sem hentar þér, sé hún laus. Þetta er gert þér af kostnaðarlausu. Verði til kostnaður vegna flutnings berðu þann reikning allan.
Hætt við námskeið og endurgreiðslur
Viljir þú hætta við námskeið þarf að skila því inn skriflega á netfangið info@framkoma.is eigi síður en 3 vikur áður en námskeið hefst. Sé það gert er námskeiðið endurgreitt að fullu.
Hægt er að hætta við námskeið eftir að það hefst en þá skerðast endurgreiðslur sem um munar lengd tímans sem þú sóttir námskeiðið. Hafi meira en 2/3 af námskeiðinu verið klárað er ekki endurgreitt (gildir ekki um veislustjórnun og einkaþjálfun). Nemandi sem byrjar námskeið fær að halda öllum gögnum.
Veislustjórnunarnámskeiðið okkar er aðeins eitt kvöld og gildir sú regla að til að fá endurgreiðslu verður að skila því inn skriflega á netfangið info@framkoma.is eigi síður en 2 vikum áður en námskeið hefst.
Greiðslur
Um leið og þú skráir þig á námskeið hjá Framkoma.is ertu að skuldbinda þig til að greiða námskeiðið að fullu (nema til verði vanefndir eða álíka sem samræmist ofangreindum lista). Greiða verður námskeiðið eigi síður en 3 vikum áður en námskeiðið hefst. Verði skráning til innan 3ja vikna verður að greiða námskeiðið innan 24 tíma frá skráningu.
Í boði eru tvær greiðsluleiðir
Millifærsla inn á bankareikning okkar
Fá sendan greiðsluseðil í heimabankann þinn
Ágreiningur
Komi til ágreningur varðandi greiðslur ber að vísa þeim til héraðsdóms.
Áskilið
Framkoma.is áskilur sér þann rétt að hætta við eða færa til námskeið sem eru á dagskrá. Það verður þó gert tímanlega og gefst öllum aðilum færi á að færa námskeiðið henti breytingin illa. Það sem við á er bæði dagsetning, tímasetning og námskeið.
Framkoma.is áskilur sér þann rétt að færa einstaka námskeið yfir á stafrænan máta á meðan COVID-19 faraldurinn geysar. Þetta er gert til að tryggja öryggi allra, bæði leiðbeinanda og þátttakanda.